Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486644740.4

    Þjálffræði
    ÍÞRF2ÞJ05
    8
    íþróttafræði
    þjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemandi öðlast undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við meiðslum. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif lyfjanotkunar á afkastagetu og árangur. Nemandi fær þjálfun í áætlunargerð. Hluti áfangans fjallar um félagsmálastörf. Nemandinn fær þjálfun í fundarstörfum s.s. fundarstjórn, fundarritun og lærir um helstu hlutverk stjórnarmanna. Nemandi lærir að lesa úr skipuritum og hvernig starfað er eftir þeim. Áfanginn jafngildir þjálfaranámskeiði ÍSÍ 1a, 1b og 1c almenna hluta.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þjálfun barna og unglinga
    • skipulagi íþróttahreyfingarinnar
    • grunnatriðum þjálffræðinnar
    • andlegum og líkamlegum þroska barna
    • uppbyggingu mannslíkamans
    • fyrstu viðbrögðum við íþróttameiðslum
    • fundarsköpum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa tímaseðil og stjórna íþróttaæfingu
    • skipuleggja íþróttaskóla fyrir yngstu íþróttaiðkendurna
    • útbúa matardagbók
    • flytja ávarpa og stjórna fundum
    • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • starfa með börnum og unglingum við íþróttaeinkunn
    • geta brugðist rétt við íþróttameiðslum með fyrstu hjálp
    • gera sér grein fyrir hvað/hvernig æfingu þarf að gera til styrkja ákveðna líkamshluta
    Getur farið fram með margvíslegum hætti meðal annars með verklegum prófum, skriflegum lokaprófum og verkefnavinnu. Einnig má meta mætingu og virkni nemenda til einkunnar.