Uppeldisfræði (2. þrep): Í áfanganum er fjallað um samskipti við börn og unglinga. Áhersla er lögð á líðan, hegðun og félagsþroska barna og unglinga. Áhrif samfélagsins verða skoðuð vegna þeirra mismunandi uppeldisaðferða sem notaðar eru. Umræða fjölmiðla og ólíkar hugmyndir manna um uppeldismál eru skoðuð í ljósi breytinga í samfélaginu. Aðrir áhrifaþættir sem skoðaðir verða eru til dæmis áföll í bernsku og staðalímyndir kynjanna. Þá er fjallað um hvað þarf að hafa í huga til að ná árangri í samvinnu með börnum og unglingum í starfi s.s. í íþróttum, tómstundastarfi og skólum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu uppeldisaðferðum
Helstu uppeldisfræðingum og kenningum
Helstu samskiptaleiðum við börn
Algengum greiningum barna eða vanda
Ólíkum bakgrunni barna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina á milli mismunandi uppeldisaðferða
beita mismunandi aðferðum í samskiptum við börn eftir ólíkum bakgrunni þeirra
nota stöðu sína sem fyrirmynd til uppbyggilegra samskipta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á hvaða samskiptaðferðir henta best við margvíslegar aðstæður og fyrir ólíka einstaklinga
beita grundvallaraðferðum í eineltismálum
taka þátt í rökræðum um uppeldismál
meta eigin frammistöðu og vinnuframlag sem og annarra á gagnrýninn hátt
setja fram þekkingu sína í ræðu og riti.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.