Nemendur kynnist stöðlum og reglugerðum um raforkuvirki. Viti hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt og þekki öryggisreglur. Þekki helstu tengimáta kerfa, álagsvarnir, lekastraumsvarnir og frágang jarðbindinga. Nemendur þekki ÍST 200-2006 og geti nýtt hann til að sækja sér upplýsingar um reglur og frágang.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
slysahættu í vinnuumhverfi rafiðnaðarmanna og helstu öryggisráðstöfunum gegn henni
raforkukerfi og rafbúnaði í íslenskum skipum
almennum kröfum í byggingarreglugerð til raflagna og rafbúnaðar í mannvirkjum
magni, gerð og staðsetningu á rafbúnaði í raflögnum fyrir íbúðarhúsnæði
tengingum neysluveitna við lágspennudreifikerfi rafveitna
fyrirkomulagi og frágangi á mælitækjum fyrir raforkunotkun
reglugerð um rafmagnsöryggismál
grundvallarreglum um raflagnir bygginga
skilgreiningum íðorða um öryggi raflagna
mismunandi gerðum dreifikerfa og almennum eiginleikum raflagna í byggingum
helstu varnaraðgerðum gegn raflosti, hitaáraun, yfirstraum og spennutruflun
vali og uppsetningu á raflögnum og búnaði þeirra
sannprófun á öryggi raflagna í byggingum
sérákvæðum vegna staðsetningar virkja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita sér upplýsinga í staðli
velja búnað fyrir neysluveitur
teikna og leggja upp almenna lögn fyrir heimili og smærri fyrirtæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ráðleggja um efni og búnað skv. staðli
tengja rafmagnstöflu skv. staðli
leggja rafmagn við mismunandi aðstæður skv. staðli
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.