Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig fjallar hann um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, svo sem brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Einnig er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara, og gegnum gervihnetti. Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framangreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemendum og farið verður í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna. Fjallað er um reglur um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir. Fjallað er um íhluti, eiginleika, hlutverk og notkunarsvið neyðarlýsinga.
VSMV3NT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu íhlutum loftnetskerfa og eiginleika þeirra
mismunandi aðferðum við teikningu og útfærslu, ásamt útreikningum á minni loftnetskerfum
uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna
uppsetningu og virkni IP myndavéla
reglum sem gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi
reglum og aðferðum sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa
helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna og hanna loftnetskerfi og mæla minni fjarskiptakerfi
teikna og velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
lesa úr teikningum af brunaviðvörunarkerfunum
velja búnað og strengi í eftilits og viðvörunarkerfin
velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi
lesa teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi
velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5)
hanna minni brunaviðvörunarkerfi, gera úttektarskýrslur og beita reglum um sjálfvirk brunakerfi
beita reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
færa inn breytingar á uppdrætti,sem gerðar eru á kerfunum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.