Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér undirstöðuþætti og frágang lýsingakerfa og nýti ákvæði reglugerða við val á mismunandi lampabúnaði með tilliti til notagildis, litaendurgjafar og endurkasts. Nemendur þjálfast m.a. í útreikningum á birtu og ljósflæði sem og kostnaði við uppsetningu og rekstur með hliðsjón af mismunandi aðstæðum og ólíkum lýsingakerfum. Þá er fjallað um hvernig stuðla megi að betri líðan manna með réttum frágangi og staðsetningu lýsingakerfa. Farið er yfir helstu atriði er varða götu- og útilýsingar. Einnig er lögð áhersla á skipulag og frágang lýsingakerfa almennt. Hugtök og reglur er varða þurra staði, raka staði, rykuga staði, íbúðarhús og atvinnuhúsnæði. Geislun, ljós og liti, ljósgjafa, optíska eiginleika, reikniaðferðir, hagnýta útfærslu og ljósmælingar. Nemendur læri að nota handbók um lýsingartækni, viðeigandi reglugerðir, ljósmælitæki, lýsingarforriti og tölvutækni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi gerðum ljósgjafa með tilliti til ljósdreifikúrfa og ljósnýtni
mismunandi endingartíma ljósgjafa
beinni og óbeinni lýsingu
ljóslit (ljóshitastigi) og litarendurgjöf
almennum mælitækjum til ljósmælinga
að minnsta kosti einu tölvuforriti til útreikninga á lýsingarkerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja viðeigandi ljósgjafa við mismunandi aðstæður með tilliti til umhverfis, litarendurgjafar og endurkasts
nota sérbúin forrit til birtuútreikninga
reikna út birtu m.t.t. aðstæðna og mismunandi lýsingakerfa
reikna út kostnað við rekstur slíkra kerfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra heiti og hugtök er varða lýsingakerfi
leiðbeina við uppsetningu og frágang lýsingarkerfa þ.e. val á ljósgjöfum og lömpum.
nýta aðferðir við birtu- og kostnaðarútreikninga mismunandi lýsingarkerfa
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.