Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487080646.44

    Hljóð- og myndbönd
    MARG3HM05
    1
    margmiðlun
    Hljóð og myndbönd
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur læra að klippa og hljóðsetja myndbönd og nota til þess ýmis tölvuforrit sem tengjast myndbandagerð og hljóðvinnslu. Áhersla er lögð á samvinnu, vinnuferli og gagnrýna hugsun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvernig tví- og þrívíðar hreyfimyndir og myndbönd eru unnin
    • því hvernig vinna má með fjölbreyttum aðferðum í klippiforriti, myndvinnsluforriti og forriti til hreyfimyndagerðar
    • vinnu fagfólks við gerð hreyfimynda og myndbanda
    • því hvernig vinna má fjölbreyttar upptökur með upptökuvél
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til hreyfimyndir og myndbönd
    • nota klippiforrit og skal geta nýtt sér þau í áframhaldandi námi
    • taka þátt í skipulagðri hópvinnu þar sem nemendur skipta með sér verkum við gerð myndbanda og hreyfimynda
    • ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann túlkar í myndböndum sínum
    • taka þátt í uppbyggilegum umræðum um hugmyndir samnemenda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • búa til myndbönd sem eru áhugaverð og persónuleg
    • fjalla um hugmyndalegan og verklegan bakgrunn verka sinna
    • taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá