Rifjum upp HTML og CSS. Nemendur munu kynnast forritunarmáli sem keyrir á bakenda vefsíðunnar og notkun forrita sem hjálpa til við að halda utan um stærri verkefni. Bakendin er oftast samsettur af server, forriti og gagnagrunni. Breytur, gagnaskipan, föll, fylki og hlutir eru meðal hugtaka sem farið verður yfir. Haldið verður áfram notkun github.
VFOR2JF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipunum í forritunarmáli fyrir bakendann
tengingu á milli forritsskráa
klösum og aðferðum
tengingu við gagnagrunna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota gagnagrunnskipanir í bakendaforritunarmáli
tengja saman mismunandi forritsskrár
setja kóða skipulega upp
setja upp vinnuumhverfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt
búa til dýnamíska vefsíðu frá grunni
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá FS.