Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487690499.22

    Íslenskar smásögur
    ÍSLE3SÍ05
    41
    íslenska
    bókmenntasaga, bókmenntastefnur, íslenskar smásögur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Í áfanganum er fjallað um smásögur í íslenskum bókmenntum og bókmenntasögu frá 19. öld til 21. aldar með sérstaka áherslu tengsl við evrópskar bókmenntir. Farið verður yfir þróun smásögunnar og tengsl við aðrar bókmenntagreinar og bókmenntasögu tímabilsins, nýja strauma og stefnur og ólíkar birtingarmyndir smásagna. Unnin verða ýmis konar valverkefni þar sem lögð verður rík áhersla á fjölbreyttar vinnuaðferðir, sjálfstæð vinnubrögð, skilvirka þekkingarleit, kunnáttu í meðferð og frágangi heimilda og skapandi hugsun og frumkvæði við úrvinnslu og skilaform verkefna.
    10 einingar á 2. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • íslenskri bókmenntasögu frá 19. öld til samtímans
    • helstu stefnum í íslenskum bókmenntum frá um 1900 til samtímans
    • tengslum íslenskra bókmennta við aðra menningarheima og listform
    • tengslum íslenskra bókmennta við evrópska menningu, bókmenntir og bókmenntastefnur
    • helstu smásögum tímabilsins og höfundum þeirra
    • notkun heimilda og hjálpargagna í tengslum við verkefnavinnu
    • frágangi og skráningu heimilda
    • grundvallarreglum við byggingu og uppsetningu ritsmíða
    • grunnhugtökum í bókmenntafræði og beitingu þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa bókmenntatexta frá 19. öld til 21. aldar
    • greina smásögur frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
    • skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarmið
    • draga saman og nota á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
    • rita heimildaritgerð þar sem beitt er gagnrýnni hugsun við úrvinnslu
    • tjá rökstudda afstöðu um bókmenntir, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel rökstuddri niðurstöðu
    • ganga frá heimildaverkefnum og – ritgerðum með viðurkenndum hætti
    • flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja, greina og tengja saman smásögur frá ólíkum tímum
    • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
    • greina aðalatriði, beita gagnrýnni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
    • flytja kynningar á verkefnum af öryggi
    • beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
    • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið og sýna frumkvæði í verkefnavali og úrvinnslu
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga, en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.