Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega, lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
lestri og ritun einfalds texta
mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
svara einföldum spurningum um daglegt líf
fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
svara einföldum spurningum um daglegt líf
fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.