Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488360318.8

    Tjáning og framkoma
    ÍSLE1TJ05(ST)
    56
    íslenska
    Tjáning og framkoma
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    ST
    Markmiðið er að efla tjáningu og auka sjálfstraust nemenda. Nemendur fá þjálfun í að koma fram, tjá sig á mismunandi hátt og rökstyðja mál sitt. Þeir fá tilsögn í raddbeitingu og látbragði eftir aðstæðum hverju sinni. Lögð verður áhersla á að nemendur hlusti á og virði sjónarmið annarra. Unnið verður með fjölbreytt umræðuefni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvers konar orðræða er við hæfi hverju sinni
    • mikilvægi mismunandi raddbeitingar
    • mikilvægi þess að vera meðvitaður um líkamstjáningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • koma fram fyrir framan nemendahópinn
    • taka þátt í umræðum
    • tjá eigin skoðanir
    • tjá sig um ákveðin málefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera meðvitaður um styrkleika sína
    • efla sjálfstraust og trú á eigin getu
    • hlusta á sjónarmið annara af víðsýni
    • virða skoðanir annarra
    • spyrja spurninga með gagnrýnu hugarfari