Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488361733.16

    Jákvæð sjálfsmynd, samskiptahæfni og samvinna
    LÍFS1JS03(ST)
    45
    lífsleikni
    Jákvæð sjálfsmynd, samvinna og samskipti
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Áhersla verður lögð á að efla samskiptahæfni nemenda og samvinnu þeirra á milli. Stuðlað verður að því að nemendur efli tilfinningaþroska sinn, auki sjálfsþekkingu sína og byggi upp jákvæða sjálfsmynd. Nemendur fá þjálfun í að tjá hugsanir sínar, skoðanir og tilfinningar. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem stuðla að uppbyggilegum samskiptum, samkennd og samvinnu. Lögð verður áhersla á kurteisi og gagnkvæma virðingu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengum samskiptareglum
    • mikilvægi þess að koma skoðunum sínum á framfæri
    • að fólk er mismunandi og getur haft ólíkar skoðanir
    • að hegðun og framkoma hefur áhrif á aðra
    • mikilvægi þess að vera kurteis og sýna virðingu
    • mikilvægi sveigjanleika í samvinnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
    • tjá skoðanir sínar og tilfinningar á uppbyggilega hátt
    • gera sér grein fyrir að eigin framkoma hefur áhrif á aðra
    • virða og taka tillit til annarra
    • nota hvatningu og hrós
    • vinna með öðrum að sameiginlegu verkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa í aðstæður og beita viðeigandi samskiptareglum
    • mynda sér sjálfstæðar skoðanir og tjá þær
    • sýna ábyrga framkomu
    • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • takast á við samvinnuverkefni
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.