Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488364264.11

    Heilsuefling og útivist
    HLSE1ÚT03(ST)
    6
    heilsuefling
    Útivist
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist útivist og möguleikum til gönguferða utandyra. Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim hópi nemenda sem er skráður í áfangann hverju sinni. Gönguferðir verða farnar ýmist í nær- og/eða fjærumhverfi skólans. Nemendur fá leiðsögn í því að velja viðeigandi fatnað og skóbúnað sem henta til lengri og styttri gönguferða.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • möguleikum útvistar og göngu til að viðhalda eða bæta líkamsástand
    • að velja viðeigandi fatnað og skóbúnað eftir viðfangsefni hverju sinni
    • mikilvægi þess að setja sér markmið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ganga rösklega
    • auka þrek og úthald í göngu
    • taka tillit til aðstæðna hverju sinni
    • bera virðingu fyrir umhverfi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fara í lengri eða styttri gönguferðir með fjölskyldu og vinum
    • öðlast öryggi í sínu nánasta umhverfi
    • fara í skipulagðar gönguferðir með hópi fólks t.d. ferðafélagi
    • njóta gönguferða og útivistar í tómstundum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá