Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af óskum og væntingum þeirra nemenda sem eru skráðir í áfangann hverju sinni. Mikilvægi gefandi og heilbrigðra samskipta eru til umfjöllunar og nemendur hvattir til að skoða styrleika sína og ræða þá auk þess sem fjallað er um mikilvægi hreyfingar og hollrar fæðu. Grunnatriði daglegrar umhirðu húðar og líkama eru til umfjöllunar, einnig verður rætt um skaðsemi tóbaks og vímuefna.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi sjálfsábyrgðar
jákvæðum áhrifum hreyfingar á líkamann
eigin styrkleikum
fjölbreyttum leiðum sem hægt er að fara til að bæta eigin heilsu og úthald
áhrifum hollra neysluvenja á heilsu og úthald
áhrifum staðalímynda á líkamsvitund
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina hvað telst hollur og góður lífsstíll og hvað ekki
meta helstu þætti góðs lífsstíls
nýta sér upplýsingar úr umhverfinu
bera virðingu fyrir eigin skoðunum og annarra
taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja sjálfsmynd sína
skynja hvað þarf til að bæta samskipti við aðra
tileinka sér heilsusamlegan lífstíl
vera meðvitaður um styrkleika sína á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
tjá eigin skoðanir um málefni áfangans
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá