Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488391039.6

    Matreiðsla og fjölbreytni
    MATR1MF03(ST)
    2
    matreiðsla
    Fjölbreytileiki í matreiðslu
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Nemendur matreiða ýmsa hagnýta og fjölbreytta rétti. Áhersla er breytileg frá önn til annar og tekur mið af þeim nemendahópi sem er skráður í áfangann hverju sinni. Innihald áfanga getur t.d. verið smáréttir, matur frá ýmsum löndum og bakstur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölbreyttu matarræði
    • fjölbreyttri notkun á hráefni
    • hugtakinu matarmenning og hversu ólík hún getur verið
    • sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og greina fjölbreyttar uppskriftir undir handleiðslu kennara
    • fara eftir leiðbeiningum
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    • elda nýja og framandi rétti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kynnast nýjum matarhefðum
    • kynnast fjölbreyttri matarmenningu
    • vera sjálfbjarga í fjölbreyttri matreiðslu
    • þekkja styrkleika sína og geta nýtt þá á jákvæðan hátt
    • vinna með öðrum og sjálfstætt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá