Fjallað er um aðferðir jákvæðrar sálfræði og núvitund. Nemendur kynnast jákvæðri sálfræði sem og hvernig þeir geta nýtt aðferðir hennar og bjargráð í daglegu lífi, þeim til aukinnar vellíðunnar. Megin áhersla er lögð á hagnýtar aðferðir og að nemendur taki virkan þátt í æfingum og verkefnum sem bæta líðan, sjálfsmynd og velferð þeirra. Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim hópi nemenda sem er skráður í áfangann hverju sinni. Lögð er áhersla á að auka þekkingu nemandans þannig að hann öðlist hæfni til að iðka núvitund á eigin forsendum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
núvitund og hvernig er hægt að þjálfa hugann til að upplifa meiri samkennd, velvild og jafnaðargeð
mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig
mikilvægi hollra lífshátta fyrir sjálfsmyndina
mismunandi leiðum í samskiptum og samstarfi
mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar og sjálfsvitundar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
iðka núvitundaræfingar
eiga góð samskipti við aðra í mismunandi aðstæðum
halda og efla einbeitingu
þekkja sjálfan sig
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir mikilvægi jákvæðni og samkenndar
geta nýtt sér núvitund til að vera meðvitaður um hugsanir sínar
gera sér grein fyrir eigin sjálfsmynd og vera sáttur við hana
styrkja sjálfsmynd sína
vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
lifa í núvitund og geta útskýrt hvað það er
upplifa samkennd og velvild
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá