Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim hópi nemenda sem er skráður í áfangann hverju sinni. Lögð er áhersla á að nemandinn auki þekkingu og leikni tengda viðfangsefninu og öðlist hæfni í að meðhöndla verkfæri, áhöld og mismunandi efni í tenglum við þau. Vandvirkni og sjálfstæði vinnubrögð eru í forgrunni. Meðal viðfangsefna áfangans eru t.d. endurvinnsla gamalla muna, smíðar, hannyrðir, þrívíð myndlist, nytjahlutir o.fl.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi hráefnum
mismunandi verkfærum og áhöldum
grunnatriðum í völdu handverki
ólíkum aðferðum við sköpun
frágangi á verkefnum
umgengni við þau verkfæri sem notuð eru
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota grunnaðferðir í ýmsu handverki
beita þeim verkfærum og áhöldum sem við eiga hverju sinni
vinna með mismunandi leiðir til að skapa
vinna frá hugmynd til lokaafurðar
nýta sér mismunandi hráefni í vinnslu nytjahluta eða myndverks
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir
bera virðingu fyrir eigin hugmyndum og annarra
sýna frumkvæði og skapandi nálgun í verkum sínum
vinna verk með mismunandi aðferðum
nota fjölbreytt hráefni í nytjahluti og myndverk
geta útfært hugmynd sína í unnin hlut
vanda frágang og vinnubrögð
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá