Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim hópi nemenda sem er skráður í áfangann hverju sinni. Lögð er áhersla á að nemandinn auki þekkingu og leikni tengda því viðfangsefni sem verður fyrir valinu hverju sinni. Viðfangsefni geta t.d. verið kynning á fjölbreyttri tónlist, tónlistarflutningur, sviðslistir, hæfileikakeppni starfsbrauta, framsögn, tjáning, persónusköpun, taktur og hrynjandi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreytni tónlistar
fjölbreytni tjáningar í sviðslistum
mikilvægi þess að sýna virðingu þegar aðrir tjá sig
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera sér grein fyrir fjölbreytni tónlistarstefna
gera sér grein fyrir fjölbreytni sviðslista
hlusta og fylgjast með af virðingu þegar aðrir tjá sig
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja sjálfstætt mat á sviðslistir
kynnast fjölbreyttum sviðslistum og tónlist
nýta sér fjölbreytta listsköpun til að auka lífsgæði sín
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.