Áhersla er lögð að þjálfa nemendur í að vinna úr hugmyndum sínum, innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim nemendahópi sem skráður er í áfangann hverju sinni Megináhersla er lögð á að þjálfa nemendur í að nýta sér tölvu-og upplýsingatækni, bæði til gagns og ánægju. Lögð er áhersla á að nemandinn auki þekkingu og leikni tengdri viðfangsefninu og öðlist hæfni til sjálfstæðra vinnubragða á því sviði sem er til umfjöllunar hverju sinni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt eins og afraksturinn
mikilvægi þess að nota ímyndunaraflið
ólíkum möguleikum við tjáningu og úrlausnir verkefna
fjölbreyttum aðferðum við lausn verkefna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fara mismunandi leiðir
átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum
vinna sjálfstætt og nýta hugmyndaflug í verkefnavinnu
fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta óhefðbundin verkfæri til að koma þekkingu sinni til skila
blanda saman mismunandi aðferðum til verkefnavinnu
átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
bera virðingu fyrir eigin hugmyndum sem og annarra
vinna sjálfstætt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.