Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.
VSMV2TN03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íhlutum tölvunetkerfa, skilji tilgang þeirra og virkni
OSI og TCP/IP líkönunum
IP vistföngum
hugtökum og skammstöfunum sem notaðar eru í tölvunetkerfum
nethögun (topology) tölvulagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja
meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli
útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá
rekja bilanir í netsamböndum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi
velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi
setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi
stilla beina (routers) með grunnstillingum
finna bilanir í tölvunetkerfi
ráða yfir nægum orðaforða til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn
nýta tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.