Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488885834.68

    Raflagnir 4
    RAFL2GA03(DR)
    2
    Raflagnir
    Raflagnir
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    DR
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd brunakerfi bæði Analog og rásastýrð. Gerðar verða mælingar og farið í bilanaleit í þessum kerfum.
    RAFL2GA03CR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lagningu bruna- og boðskiptalagna.
    • kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum.
    • uppröðun í tengiskápa.
    • mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað.
    • leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt.
    • setja upp og tengja mismunandi brunakerfi.
    • finna út bilanir og gera við þær.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu.
    • tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir.
    • tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti.
    • gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp.
    • geta valið búnað í ljósleiðarakerfi og umgengist búnaðinn af þekkingu.
    • ganga frá lögnum að brunakerfum og viðverukerfum.
    • tengja stjórnstöðvar brunakerfa.
    Áfanginn byggi á verkefnastýrðu námi. Í símati séu lágmark 5 matsþættir. Lámarkslokaeinkunn er 5.