Nemendur öðlast vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana í seinni hluta áfangans.
RLTV2HT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íslenskum staðli um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A
heitum og hugtökum raflagnateikninga
magntöku og kostnaðartöku raflagna
helstu teikniforritum
almennum og sértækum teiknitáknum
teiknireglum og staðalákvæðum varðandi þurra-, raka– og rykuga staði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr raflagnateikningum
teikna í ofangreindar neysluveitur
beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum
nýta sér minnst eitt teikniforrit sem notað er við gerð teikninga
velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur
magntaka og reikna kostnað á tölvtæku formi fyrir allar neysluveitur
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.