Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488995634.59

    Heilsuefling fyrir starfsbraut
    HLSE1ST03(ST)
    5
    heilsuefling
    Heilsuefling fyrir starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Nemendur taka þátt í almennri hreyfingu bæði innan- og utandyra. Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur læra mikilvægi upphitunar, þol- , styrktar og liðleikaþjálfunar. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að auka heilsulæsi. Í áfanganum er leitast við að nemendur bæti sig persónulega og finni út hvaða hreyfingarálag henti þeim.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætti
    • helstu þjálfunaræfingum
    • mikilvægi þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun
    • gildi leikja til að byggja upp heilsuna
    • að líkaminn styrkist við að stunda hreyfingu
    • að hægt sé að njóta þess að stunda hreyfingu
    • markmiðssetningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka þátt í líkams og heilsurækt sem bæta eigin heilsu
    • framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
    • geta unnið með öðrum við hreyfingu og heilsurækt
    • framkvæma æfingar á réttan hátt
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á hvaða álag í líkamsrækt henti honum best
    • meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
    • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.