Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi á starfsbraut hvað varðar frekara nám og störf. Ýmsir þjónustuaðilar, stofnanir, félög og hagsmunasamtök eru kynnt fyrir nemendum. Í áfanganum er jafnframt farið yfir útskrift og útskriftardaginn.
Áfanganum er ætlað að búa nemendur undir virka þátttöku í atvinnulífinu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
möguleikum hans til frekara náms
hvar hægt er að leita að störfum við hæfi
opinberum þjónustustofnunum
hvernig útskrift fer fram
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita upplýsinga á netinu um opinbera þjónustu (t.d. á netinu)
leita að og nýta sér upplýsingar á um nám og störf (t.d. á netinu)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
gera ferilskrá
taka þátt í útskrift
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.