Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta grunnþekkingu í vélfræði. Fjallað er um mismunandi form orku, afls og orkunýtingu til að auka skilning á þessum hugtökum. Lögmál varmafræðinnar um óforgengileika orkunnar eru kynnt ásamt SI-mælieiningakerfinu. Eldsneytisnotkun bulluvéla og orkuforði. Fjallað er um nýtni bulluvéla, pV-línurit og pt-línurit. Meðalþrýstingur pmi fundinn í pV-línuriti með lóðlínuaðferðinni. Reiknað framleitt afl dísilvéla. Samhengi þrýstings og hitastigs. Fast og fljótandi eldsneyti úr kolefnissamböndum. Fjallað er um vinnslu á olíu og hvað mælikvarðarnir oktantala, setantala og dísilindex segja til um brunaeiginleika eldsneytis.
VÉLS2KB05, STÆF2RH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim þáttum sem hafa áhrif á aflframleiðslu véla
orkunýtingu og eldsneytisnotkun bulluvéla
samhengi aflframleiðslu og hinna ýmsu stærða bulluvéla
aðferðum við mælingar á meðalþrýstingi
áhrifum mismunandi álags á gerð pV-línurits
lögmálum varmafræðinnar um varðveislu orkunnar
aflmælingum véla með notkun hemla
þjöppunarhlutfalli og rúmmálsmælingum á vélum
samhengi aflframleiðslu, álags og hvernig inngrip í aflframleiðsluna hefur áhrif á starfsemi vélarinnar
eldsneytisnotkun, orkutapi og orkunýtingu
eldsneytisgerðum, olíutegundum og staðbundnum einkennum olíu
oktantölu, cetantölu og dieselindex
vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
snúa formúlum
lesa út úr ritmynd vélar
mæla ritmyndir og fundið pi, pmax, pþjapp
leiða út formúlur sem fyrir koma í námsefninu og beita þeim við kausn verkefna
reikna út forðaradíus
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra samhengi þrýstings og hitastigs og finna þjöppunarhlutfall
nýta ritmyndir til einfaldra bilanagreininga
setja fram útreikning á skipulagðan og snyrtilegan hátt
útskýra gildi breyta í formúlum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.