Í áfanganum er áhersla lögð á umfjöllun um jafnrétti í atvinnulífinu almennt, um jafnrétti kynjanna og jafnrétti fólks með fötlun og skerta starfsgetu til atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði. Jafnframt verður fjallað um vinnuvernd, öryggismál á vinnustöðum og mikilvægi þess að vera ábyrgur starfsmaður. Áfanganum er ætlað að búa nemendur undir virka þátttöku í atvinnulífinu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
jafnrétti kynjanna og stöðu þeirra í atvinnulífinu
jafnrétti fólks með fötlun og skerta starfsgetu og stöðu þeirra í atvinnulífinu
öryggismálum í starfsumhverfinu
mikilvægi þess að fylgja settum verklagsreglum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
átta sig á um mikilvægi jafnréttis almennt í atvinnulífinu
átta sig stöðu kynjanna í atvinnulífinu
átta sig á stöðu fólks með fötlun og skerta starfsgetu í atvinnulífinu
meta hættur í vinnuumhverfinu
fylgja öryggisreglum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta stöðu jafnréttismála í atvinnulífinu
taka þátt í umræðum um viðfangsefni áfangans
sýna ábyrga hegðun á vinnustað
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.