Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í handbolta. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemandinn öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
ÍÞRÓ1GH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í handbolta
hvernig á að leiðbeina börnum í handbolta
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í handbolta
kennslu tækniæfinga í handbolta
skipulagningu handboltaþjálfunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í handbolta
greina getu ólíkra einstaklinga í hóp
nota handbolta sem skólaíþrótt
spila handbolta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í handbolta
stjórna hópi af börnum í handboltaþjálfun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er nánar útfært í kennsluáætlun.