Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í knattspyrnu. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Nemendum í áfanganum gefst kostur á að undirgangast unglingadómarapróf ( KSÍ ) og standist þeir prófið fá þeir unglingadómararéttindi í greininni.
ÍÞRÓ2GH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í knattspyrnu
hvernig á að leiðbeina börnum í knattspyrnu
kennslu tækniæfinga í knattspyrnu
skipulagningu knattspyrnuþjálfunar fyrir yngstu aldurshópana
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í knattspyrnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í knattspyrnu
nota knattspyrnu sem skólaíþrótt
spila knattspyrnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í knattspyrnu
stjórna hópi af börnum á knattspyrnuæfingu
átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn.Námsmat er nánar útfært í kennsluáætlun.