Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og að nemendur læri helstu leikreglur blaks. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
ÍÞRÓ1GH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í blaki
hvernig á að leiðbeina börnum í blaki
kennslu tækniæfinga í blaki
skipulagningu blakþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í blaki
nota blak sem skólaíþrótt
spila blak sér til heilsubótar og ánægju
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í blaki fyrir yngstu iðkendurna
stjórna hópi af börnum
átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmat er útfært nánar í kennsluáætlun.