Í þessum áfanga er stefnt að því að nemendur fái trausta þekkingu á einni eða fleiri íþróttagreinum og þeir búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf í viðkomandi grein(um). Efnið er breytilegt eftir önnum eftir aðstæðum hverju sinni. Dæmi um viðfangsefni: Badminton, borðtennis, júdó, karate, glíma, golf, jóga, sund, fimleikar og íþróttir fatlaðra.
ÍÞRÓ1GH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni í íþróttagreininni
mismun á þjálfun barna og fullorðinna
leikreglum og/eða helstu æfingum greinarinnar
undirbúningi og skipulagi sem þarf til að iðka íþróttina
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
undirbúa æfingar fyrir börn og fullorðna í greininni
helstu tækniatriðum greinarinnar
kennslufræði greinarinnar
dómgæslu greinarinnar ef við á
leikfræði og eða tækni greinarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúning þjálfunar greinarinnar
gerð tímaseðla
dæma leiki hjá yngstu iðkendum ef við á
nýta sér upplýsingatækni við skipulag æfinga og þjálfun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmat er útfært nánar í kennsluáætlun.