Lýsing: Í þessum áfanga er fjallað um íþróttaiðkun barna, þroskaferil, hreyfiþroska og í framhaldinu um hlutverk þjálfara. Nemendur læra grunnatriði þjálffræði, um þol, kraft, liðleika og tækni. Farið er í undirstöðu kennslufræði og skipulags. Nemendur læra einnig um næringu íþróttafólks, heilbrigt líf og íþróttameiðsli. Fjallað er um hlutverk þjálfarans og hann sem fyrirmynd og einnig er fjallað um hið frjálsa íþróttastarf í landinu, félög og samtök íþróttafélaga. Nemendur fá þjálfun í að halda fundi og taka ákvarðanir.
ÍÞRÓ1GH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eðli íþrótta hjá börnum
þroskaferli barna
mikilvægi fjöldaþátttöku og jafnréttis allra til að njóta þjálfunar
helstu þáttum þjálffræði
næringu íþróttafólks og mikilvægi hennar
íþróttameiðslum og forvörnum
skipulagi íþróttaþjálfunar
íþróttahreyfingunni
mikilvægi samskipta við foreldra og aðra sem tengjast íþróttum barna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
undirbúa og framkvæma íþróttatíma fyrir börn að 12 ára aldri
meta hvers konar æfingar henta yngstu iðkendum í íþróttum
halda fundi og flytja mál sitt úr ræðustól
bregðast við íþróttameiðslum
undirbúa íþróttatíma þannig að sem minnst hætta verði á slysum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir íþróttir sem þeir þekkja
beita fjölbreyttum þjálfunaraðferðum
skipuleggja þjálfun þannig að allir fái jafna athygli og kennslu við hæfi
haga starfi sínu sem þjálfari svo að enginn verði fyrir einelti
búa til góðan liðsanda í hópnum sem þeir þjálfa
fylgjast með að hópurinn standi saman bæði utan og innan íþróttaæfingar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmat er útfært nánar í kennsluáætlun.