Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1489578827.16

    Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
    STFR1RS03(ST)
    5
    Starfsfræðsla
    Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    ST
    Í áfanganum er fjallað um réttindi og skyldur á vinnumarkaði, stéttarfélög og hlutverk þeirra á vinnustöðum. Jafnframt er fjallað um kjaramál, skatta og skyldur launþega og vinnuveitenda. Áfanginn er liður í því að búa nemendur undir virka þátttöku í atvinnulífinu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur
    • réttindum, ábyrgð og skyldum launþega og vinnuveitenda
    • hlutverki stéttarfélaga
    • kjaramálum
    • skattamálum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nálgast upplýsingar um réttindi og skyldur á vinnumarkaði (t.d. af netinu)
    • afla sér upplýsinga um eigin réttindi á vinnustað
    • vera meðvitaður um eigin réttindi og skyldur á vinnumarkaði​
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tekið þátt í umræðum um kjaramál, réttindi og skyldur á vinnustað
    • vera meðvitaður um kjaramál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
    • þekkja helstu samtök launafólks í eigin starfsumhverfi
    • þekkja hlutverk stéttarfélaga
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.