Áfanginn fjallar um kvikmyndafræði ofurhetjumynda, þróun þeirra í kvikmyndasögunni og áhrif á samfélagið. Einnig er saga teiknimyndablaða rakin og nemendur lesa mikilvægar teiknimyndasögur sem hafa haft áhrif á bæði teiknimyndablöð og kvikmyndir og fræðilegan texta. Einnig eru skoðaðar siðferðislegar og menningarlegar hliðar á hugmyndinni um ofurhetjuna og hvernig hún endurspeglar mannsálina á 21. öldinni.
ÍSLE2ED05 EÐA KRFT2KF05 EÐA HEIM2BY05 EÐA SAGA2FR05/SAGA2OL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægum kvikmyndafræðilegum hugtökum
sögu teiknimyndablaða og ofurhetjunnar
sögu og þróun ofurhetjumyndarinnar
grunnaðferðum í greiningu kvikmynda og teiknimyndasagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fræðilegan texta
endursegja og skýra fræðilegan texta
beita gagnrýnni hugsun
meta eigin rök og annarra
tjá sig og hlusta á aðra
tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta miðlað skoðunum og fræðilegum athugunum á skýran hátt.
geta greint kvikmyndir og teiknimyndasögur á fræðilegan hátt
geta notað hugtök og aðferðir til að skilja og greint báða miðla betur
geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin yfir önnina. Áhersla á umsagnir og endurgjöf. Engin skrifleg lokapróf.