Á tímabilinu þurfa nemendur að vinna markvisst með hrossin sín. Nemendur leysa reiðverkefni og kenna hesti að teymast. Vinna nemenda með hrossin þarf að vera hluti af þjálfunaráætlun þeirra. Nemendur vinna með hrossin að lágmarki 3 sinnum í viku og halda dagbók um alla vinnuna í kringum hvert hross. Í dagbókinni eiga að koma fram upplýsingar um alla þá vinnu sem unnið er með hestinn. Dagbókin á einnig að innihalda gagnrýna umfjöllun um hvað tókst vel og hvað mætti betur fara. Í lok tímabils verður verkleg úttekt í formi myndbands.
HEST2FB05, HEST2FV05, HEST2VN04 og HEST2VN08
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ábendingarkerfi knapans við hendi og á baki
aðferðum til að bæta eigið jafnvægi á baki
náttúrulegu eðli og atferli hestsins og hvernig hestinum er kennt út frá því í umgengni, við hendi og á baki
einföldum fimiæfingum sem unnar eru við hendi, í hringteymingu og á baki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi eigið verklag í umgengni við hesta
bregðast rétt við mismunandi skapgerð og hegðun hesta
nýta sér mismunandi ásetur og ábendingar við stjórnun hests
taka sjálfstæðar ákvarðanir í vali á þjálfunarbúnaði
gera einfaldar grunnæfingar sem unnar eru við hendi, í hringteymingu og á baki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja saman fjölbreytta og góða þjálfunaráætlun
greina og skilja þjálfunarferlið hjá öðrum knöpum
taka þátt í umræðum um það sem er að gerast í hestamennskunni í dag
Á tveggja vikna fresti þarf að skila skýrslum til fulltrúa FMOS. Innan við viku eftir skil á fulltrúi FMOS að skila athugasemdum til nemandans. Í lok tímabilsins skulu nemendur afhenda útprentaða lokaskýrslu til fulltrúa skólans.
Reiðverkefni og teymingaverkefni eru unnin og tekin upp á myndbönd. Eftir leiðsögn og umsagnir frá kennara eiga nemendur síðan svara reiðverkefninu í skýrslugerð.