Í þessum áfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byrjað er að byggja ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir eru: orkuhugtakið almennt og í tengslum við efnahvörf, Nánar fjallað um Lotukerfi og orkustiga rafeinda, skematísk framsetning efnatengja og Lewis myndir, tengi innan og á milli sameinda, flokkar efnasambanda, lögun sameinda, VSPER þrívíddarkerfið og IUPAC nafnakerfið.
EFNA2AM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugmyndum um orku og lögmál um varðveislu orkunnar, innri orku og hvarfvarma
skematískri framsetningu tengja
áttureglunni og tengslum hennar við Lotukerfið
hvernig tákna má sameindir í fleti og teikna Lewis myndir
tengjum innan sameinda og milli sameinda
flokkun efnasambanda
lögun sameinda
IUPAC nafnakerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna stöðu- og hreyfiorku út frá mælistærðum
vinna með umbreytingu orku milli orkuforma og nota orku með efnajöfnum, teikna Lewis myndir og nota þær til að finna líklegustu samsetningu sameindar
greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
greina flokka efnasambanda og gefa efnunum nöfn samkvæmt IUPAC nafnakerfinu
skrifa skýrslur um tilraunir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
túlka efnatákn og efnajöfnur
nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt
tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli
nota fyrirliggjandi gögn til að leysa flóknari verkefni en áður