Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490812728.46

    Málnotkun og tjáning 1
    ENSK2LM05
    46
    enska
    lestur og menning, tjáning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Unnið verður með fjölbreytt efni frá mismunandi menningarheimum og með fréttatengt efni sem snertir málefni líðandi stundar. Áhersla er lögð á að auka færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Nemendur tjá sig um ólík efni í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
    Grunnskólapróf.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
    • orðaforða í tengslum við efni áfangans
    • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta í formi bókmennta, texta almenns eðlis og aðra texta sem tengjast efni áfangans
    • tjá sig með skýrum hætti í ræðu eða riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • beita viðeigandi hjálpargögnum við lestur og ritun ýmissa texta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
    • tileinka sér efni/inntak margvíslegra texta
    • tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
    • skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti
    • hagnýta í ræðu og riti þann orðaforða sem áfanginn byggir á
    • eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.