Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490812798.3

    Bókmenntir og menning enskumælandi landa
    ENSK3MB05
    35
    enska
    bókmenntir, menning og ritun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað verður um breskt og bandarískt samfélag, alþjóðleg áhrif og útbreiðslu enskrar tungu. Í tengslum við það verður unnið með fjölbreytt efni, s.s. bókmenntir, kvikmyndir, fréttir, heimildamyndir og ýmiskonar texta. Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur vinni með fjölbreyttari og flóknari texta en áður. Þeir halda áfram að tileinka sér nýjan orðaforða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum, svo sem þematengdu efni að eigin vali o.fl., sem felur í sér öflun upplýsinga í gegnum margmiðlunarefni, á bókasafni og á netinu. Áhersla er lögð á fjölbreytt verkefni þar sem nemendur hafa val um form verkefnaskila.
    10 fein. í ensku á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölbreyttum orðaforða sem gerir honum kleift að takast á við áframhaldandi nám
    • sögu og menningu á helstu málsvæðum enskunnar
    • alþjóðlegum áhrifum og útbreiðslu enskrar tungu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og ánægju flókna texta
    • hlusta og taka þátt í umræðum og rökræðum um efni fræðilegs og menningarlegs eðlis
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu
    • taka þátt í umræðum og rökræðum um menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
    • flytja vel uppbyggða kynningu, draga fram aðalatriði, rökstyðja mál sitt með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • afla sér þekkingar um fræðileg viðfangsefni og miðla á skýran hátt
    • skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem rök eru vegin og metin
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.