Áfanginn er undirbúningur undir háskólanám og nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða vísinda og fræða. Nemendur vinna einstaklingsverkefni sem tengist námsvali og áhugasviði. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og stærri ritunarverkefnum, sem fela í sér fjölbreytta upplýsingaöflun og heimildavinnu. Við kennsluna verður nýtt fjölbreytt efni, s.s. fréttir, heimildamyndir og ýmiskonar textar.
A.m.k. 10 einingar í ensku á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
rithefðum sem við eiga í textasmíð
helstu aðferðum við að skipuleggja og skrifa fræðilegan texta á ensku
því hvernig meta má gæði heimilda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til fróðleiks og ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs eðlis
lesa fjölbreyttar gerðir texta, sér í lagi fræðilega
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er fræðilegt efni
flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
nýta sér nýjan orðaforða í ræðu og riti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.