Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490822234.71

    Heilbrigðisfræði fyrir vélstjóra
    HBFR1HE01(AV)
    8
    heilbrigðisfræði
    heilbrigðisfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    AV
    Farið verður yfir uppbyggingu líkamans, líffærafræði og grunnþætti í lífeðlisfræði, mat á ástandi sjúklings og samskipti við lækna í landi. Farið verður í skyndihjálp og undirbúning sjúklings fyrir flutning. Farið verður yfir algengustu bráðasjúkdóma og algengustu tegundir slysa og hvernig bregðast á við. Einnig verður rætt um lost, ofkælingu og bruna og helstu lyf í lyfjakistu. Verklegar æfingar í mælingum lífsmarka.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vefjabyggingu líkamans og helstu líffærakerfum
    • algengustu sjúkdómum sem skyndilega geta gert vart við sig
    • réttum viðbrögðum við sjúkdómum og slysum um borð
    • hvaða ráðstafanir skuli gera áður en hreyft er við þeim sem hefur slasast við fall
    • aðferðum við að leggja mat á ástand sjúklings
    • réttum aðgerðum og viðbrögðum við slysum, svo sem líkamlegum áverka, losti, eitrunum, ofkælingu og bruna
    • þeim þáttum sem huga þarf að þegar búið er um áverka
    • gildi sótthreinsunar og nauðsyn þess að þvo sár og skipta um umbúðir
    • líkamlegri og andlegri aðhlynningu sjúklinga eftir slys, þ.m.t. þeirra sem bjargað er úr sjávarháska
    • réttum viðbrögðum við slysum um borð í skipum þar sem talið er að eiturefni hafi borist úr umbúðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita aðferðum við lífgunartilraunir, þar með talið súrefnisgjöf
    • beita hjartahnoði og veita aðstoð við hjartastopp
    • búa um einföldustu beinbrot til bráðabirgða
    • gefa sjúklingi lyf með sprautu í vöðva
    • mæla blóðþrýsting
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • veita skyndihjálp við bráðasjúkdómum eða slysum
    • leggja mat á ástand hins sjúka eða slasaða
    • búa um áverka og búa sjúkling undir flutning til læknis og gefa lyf í samráði við lækni
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.