Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490871743.6

    Rafmagnsfræði 4 fyrir vélstjóra
    RAMV2RF05
    4
    Rafmagnsfræði
    fasvik, rafmagnsfræði riðstraums, vektormyndir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    AV
    Nemandinn öðlast djúpan skilning á eðli riðstraums og þeim lögmálum og hugtökum sem þar eiga við. Nemandinn lærir að nota vektormyndir og stærðfræðilega útreikninga til að öðlast skilning á orsökum og áhrifum fasviks í einfsa og þriggja fasa riðstraumsrásum. Leikni í notkun vektoramynda við útreikninga RLC rása.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum riðstraumsfræðinnar
    • fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess
    • notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum
    • notkun hornafalla stærðfræði til að reikna út stærðir í vektoramyndum
    • aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum
    • skiptingu rafafls í raun-, laun- og sýndarafl
    • RLC rafrásum og einföldum raforkukerfum skipa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera vektoramyndir og útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi
    • gera útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja raforkukerfi skipa og annast rekstur þeirra
    • útskýra orsakir og áhrif fasviks í riðstraumsrásum
    • leiðrétta fasvik í raforkukerfum
    • útskýra með vektormyndum og stærðfræðilegum útreikningum áhrif fasviks í riðstraumsrásum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.