Nemandinn öðlast þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og færni við að taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit, setja upp skipulagt ferli sem ákvarðar tímalengd verkefnis (cpm).
Nemandinn tileinkar sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa. Nemandinn kynnist grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, þ.e. gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Hann öðlast haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum og lærir að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkþáttagreiningu og flokkunarkerfum
viðhaldsverkfærum og dæmigerðum viðhaldskerfum
hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum
uppbyggingu og markmiðum mismunandi viðhaldskerfa og viðhaldsstjórnunar
flokkunarkerfum, svo sem SFI-kerfinu
tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað
helstu gerðum viðhaldskerfa, þ.e. bilanaviðhald, spáviðhald, tímastýrt viðhald og viðhald byggt á ástandsskoðun
helstu tækjum sem notuð er við ástandsskoðun og til fyrirbyggjandi viðhalds, svo sem titringsmæla, þykktarmæla og útleiðslumæla
uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita, (cpm)
grundvallarhugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar
gæðakerfum, gæðahandbókum og gæðavottun fyrirtækja
öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ISM kóðans og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra
helstu aðferðum við tæringarvarnir í skipum og á hverju þær aðferðir byggja
helstu verkbókhaldskerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja gæðastarf á vinnustað
setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum
vinna samkvæmt verkferlum gæðastjórnunar
setja upp gæðahandbók og gera viðhaldáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra hvað átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum
setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna, (cpm)
útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.