Í áfanganum lærir nemandinn um smíði tréstiga innanhúss með áherslu á algengustu útfærslur þeirra, samsetningar og smíði. Nemandinn lærir að búa til skapalón í fullri stærð eftir teikningum og hvernig þau eru notuð til að smíða þrep, stigakjálka og stigahandrið. Nemandinn fær þjálfun í að smíða tréstiga eða einstaka hluta þeirra í smækkaðri mynd og notar til þess hefðbundin verkfæri og algengar trésmíðavélar. Áfanginn er ætlaður bæði húsa– og húsgagnasmiðum.
BURÐ1BK03 og TIMB2VS16
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipulagningu verkefna, upplýsingaöflun og áætlanagerð
byggingareglugerð um stiga
samsetningaraðferðum og smíðisfestingum á tréstigum og handriðum
áhöldum og tækjum til smíði tréstiga og handriða
öryggisreglum og öryggisbúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
vinna eftir séruppdráttum og deiliteikningum
vinna sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja saman alla þætti vinnustaðanáms og skóla
undirbúa verkefni á eigin spýtur
gera efnis- og verkáætlun
vinna sjálfstætt eftir verkáætlunum
vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.