Í áfanganum læir nemandinn grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta, lærir muninn á aðal– og séruppdráttum, fær þjálfun í að vinna með mælikvarða og teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir og innréttingar. Nemandinn lærir aðferðir við þrepadeilingu stiga ásamt því að gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð ásamt stöðlum og verklýsingum. Mikilvægt er að nemandinn tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð við upplýsingaleit og gagnaúrvinnslu og hafi aðstöðu til að prenta út vinnuteikningar í fullri stærð. Áfanginn er ætlaður bæði húsa- og húsgagnasmiðum og byggist aðallega á verkefnavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kröfum sem gerðar eru til glugga og hurða
uppbyggingu glugga, hurða og innréttinga
reglum og reikniaðferðum um stiga
vinnuteikningum sem henta fyrir trésmíðaverkstæði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota tölvur til teikninga
útbúa sérmyndir, deili og snið
vinna með mismunandi mælikvarða
útbúa teikningar til prentunar og prenta út nothæfar vinnuteikningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja uppbyggingu vinnuteikninga
teikna útlitsmyndir, sérmyndir, deili og snið í tölvu
útbúa vinnuteikningar eftir öðrum teikningum og fyrirmælum
vinna eftir teikningum á trésmíðaverkstæði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.