Markmið áfangans er að efla nemandann sem íþróttamann, bæði líkamlega og faglega. Áfanginn er þríþættur og byggir á styrkþjálfun þar sem nemendur velja sér áherslur í líkamlegri þjálfun í samstarfi við kennara. Annar þátturinn felst í tækniþjálfun og verkefnavinnu sem er sérsniðin að viðkomandi íþróttagrein. Þriðji þátturinn er fagbókleg kennsla þar sem fjallað er um grundvallaratriði næringar og hvíldar. Gerðar eru kröfur til nemenda um góða ástundun og námsárangur.
Fyrsti áfangi á afreksbraut. Nemendur skulu hafa skilað inn undirrituðum samningi um vímuefnaleysi, námsárangur og mætingu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í næringarfræði, s.s. hlutverki næringarefna, vatns og vítamína.
grunntækniatriðum viðkomandi íþróttagreinar.
jákvæðum áhrifum heilbrigðs lífstíls á árangur í íþróttum, s.s. nægs svefns og hvíldar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa næringarinnihaldslýsingar af umbúðum.
ástunda góða og rétta líkamsbeitingu við þjálfun styrks og afls.
framkvæma einföld tæknileg atriði í grundvallarhreyfingum í viðkomandi íþróttagrein.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta eigin venjur varðandi næringu, svefn og hvíld. Metið með næringardagbók og skriflegu prófi.
lesa upplýsingar um næringargildi á umbúðum og meta þær með hliðsjón af þörfum líkamans sem metið er með verkefnum í tímum.
auka styrk, tækni og hraða eftir því sem við á í hverri íþróttagrein sem metið er með líkamlegum prófum.
nota rétta tækni í grundvallarhreyfingum í viðkomandi íþróttagrein, t.d. sendingum og móttöku. Metið af kennurum m.a. með tækniprófum.
Líkamleg próf (styrkþjálfun): Nemendur eru prófaðir í nokkrum lykilþáttum líkamslegs forms, s.s. afli, snerpu og hreyfanleika. Unnið er að því að bæta þessa þætti í styrkþjálfunartímum vetrarins.
Bóklegt próf (fagbókleg kennsla): Er úr bóklegum fyrirlestrum vetrarins, ásamt spurningum úr því efni sem kennt er í gegnum styrkþjálfunina. Allt efni sem lagt hefur verið inn í bóklegum tímum fyrir próf sem og efni sem kynnt hefur verið í styrkþjálfun.
Skráning í vellíðunarkönnun: Nemandi fyllir út rafræna könnun vikulega. Hver skil á réttum tíma gilda og mikilvægt er að svörin séu gefin eftir bestu samvisku.