Í áfanganum er fjallað um stöðu aldraðra í samfélaginu og þá félagsþjónustu sem öldruðum stendur til boða. Jafnframt er lögð árhersla á sjálfsákvörðunarrétt aldraðra og þau réttindi sem öldruðum eru tryggð samkvæmt lögum. Hugmyndafræði og helstu kenningar í öldrunarhjúkrun eru skoðaðar. Farið er yfir helstu andlegar, félagslegar og líkamlegar breytingar sem fylgja hækkandi aldri. Fjallað er um helstu sjúkdóma og heilsufarsvandamál sem hrjá aldraða og viðeigandi hjúkrun. Kynntar eru aðferðir til þess að meta áhrif sjúkdóma og heilsubrests á virkni og vellíðan aldraðra. Fjallað er um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls á efri árum með áherslu á forvarnir og heilsueflingu til auka lífsgæði og vellíðan aldraðra. Sorg og sorgarviðbrögð eru tekin til umfjöllunar. Lögð er áhersla á sérstakar hjúkrunarþarfir einstaklinga við lífslok og líknarmeðferð. Mikil áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu, yfirsýn og heildræna nálgun við hjúkrun aldraðra hvort sem er á stofnunum eða á heimilum ásamt faglegum vinnubrögðum og viðurkenndri skráningu hjúkrunar.
HJÚK2TV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim líkamlegu, andlegu og félagslegu breytingum sem fylgja hækkandi aldri
áhrifum algengra öldrunarsjúkdóma á virkni og lífsgæði aldraðra
aðferðum og mælitækjum sem notuð eru til að meta vitsmunalega færni, sjálfsbjargargetu og aðstæður aldraðra
forvarnargildi og mikilvægi heilbrigðis lífsstíls á efri árum
þeirri þjónustu og stuðningi sem öldruðum stendur til boða í samfélginu
kenningum sem fjalla um aðlögun að heilsubresti, sorg og missi
lífsloka- og líknarmeðferð
þverfaglegri teymisvinnu í málefnum aldraðra
viðurkenndri hjúkrunarskráningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera greinarmun á eðlilegum öldrunarbreytingum og sjúkdómsástandi hjá öldruðum
greina áhrif öldrunarbreytinga á virkni og lífsgæði aldraðra
fræða aldraða um heilbrigðan lífsstíl og þá þjónustu sem þeim stendur til boða í samfélaginu
hagnýta sér kenningar um aðlögun að sorg og missi í hjúkrunarstörfum
nota viðurkennda hjúkrunarskráningu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu um málefni aldraðra
nota viðurkenndar aðferðir og kvarða til þess að meta sjálfbjargargetu aldraðra
hjúkra öldruðum á heildrænan hátt með tilliti til félagslegs, andlegs og líkamlegs ástands
hjúkra öldruðum á líknandi meðferð og við lífslok
miðla á faglegan hátt upplýsingum um hjúkrun aldraðra.
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá