Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu í hjúkrun. Nemendur dýpka og þjálfa færni sína í ritun heimildaritgerða og þeim fræðilegu vinnubrögðum sem krafist er við vinnslu og frágang slíkra ritgerða. Lögð er áhersla á notkun viðurkenndra heimilda innan heilbrigðisvísinda. Nemendur vinna undir verkstjórn kennara á sjálfstæðan hátt þar sem krafist er frumkvæðis, vandaðra vinnubragða, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi. Nemendur kynna viðfangsefni sín með margvíslegum hætti á málstofu.
HJÚK3FG05 Samfélagshjúkrun
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tilteknu viðfangsefni í hjúkrunarfræði sem hann hefur valið sér
helstu hugtökum sem tengjast gerð heimildaritgerðar
byggingu heimilda- og rannsóknarritgerða
nauðsyn þess að vanda meðferð heimilda
reglum um höfundarrétt og hugmyndum um ritstuld
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja viðurkenndum reglum við gerð og frágang ritgerðar
beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu efnis í heilbrigðisvísindum
afla fjölbreyttra heimilda, t.d. skráðra heimilda úr bókum, tímaritum og af netinu eða frumheimilda, ef svo ber undir
koma efni á framfæri á vel uppbyggðan, skýran og greinargóðan hátt
lesa fræðilegan texta um heilbrigðismál á íslensku og erlendu tungumáli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera raunhæfa verkáætlun og framfylgja henni
setja fram rökstudda rannsóknarspurningu eða efnisyfirlýsingu
skrifa lokaritgerð í heilbrigðisvísindum um sérhæft efni í hjúkrun samkvæmt viðurkenndum aðferðum
tjá sig í ræðu og riti á gagnrýninn og skapandi hátt um sérhæft efni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá