Í áfanganum er fjallað um vinnuumhverfi og áhrif þess á líkamlega og andlega líðan. Farið er í líkamsvitund og líkamsbeitingu, vinnutækni við ólíkar aðstæður og mismunandi störf. Fjallað er um leiðir til að draga úr líkamlegu og andlegu álagi við vinnu. Nemandi leysir ýmis verkefni, með og án léttitækja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum vinnuumhverfis á starfsfólk
líkamsvitund og hreyfingu
mismunandi vinnuaðstöðu
mismunandi beitingu líkamans við ólík störf
ýmsum léttitækjum sem draga úr líkamlegu álagi og hættu á álagsmeinum
áhrifum álags og hvíldar á líkamann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja vinnurými sitt með tilliti til góðrar líkamsbeitingar og annarra áhrifaþátta í vinnuumhverfi
nota heppilega vinnutækni
nýta sér léttitæki til forvarnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir áhrifum vinnunnar á líkamann og mikilvægi góðrar líkamsbeitingar
geta notað góða vinnutækni og fundið leiðir til að efla líkamsbeitingu og vinnutækni
geta greint afleiðingar og einkenni rangrar líkamsbeitingar og vinnutækni og fundið leiðir til að verjast þeim
geta sjálfur unnið að eigin heilsueflingu og vellíðan með því að nota rétta líkamsbeitingu og vinnutækni
upplýsa aðra um kosti góðrar líkamsbeitingar og vinnutækni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá