Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: taugakerfi, innkirtlakerfi, ónæmiskerfi og stoðkerfi. Auk þess er fjallað um smitgát, sár og sárameðferð, verki og verkjameðferð. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
HJÚK2HM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
mikilvægi hjúkrunarskráningar
hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í tauga-, innkirtla-, ónæmis- og stoðkerfi
smitgát, sárum og sárameðferð, verkjum og verkjameðferð
algengum sáraumbúðum og mismunandi notagildi þeirra
undirbúningi og eftirmeðferð vegna rannsókna og skurðaðgerða
smitgátarvinnubrögðum
verkjameðferð annarri en lyfjum
helstu einkennum illkynja sjúkdóma í þeim líffærakerfum sem fjallað er um í áfanganum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna skjólstæðingi og aðstandendum stuðning og umhyggju
greina á milli mismunandi hjúkrunarþarfa langveikra, bráðveikra og mikið veikra sjúklinga
vinna eftir viðurkenndri hjúkrunarskráningu
nota viðeigandi smitgátarvinnubrögð
nota mismunandi sáraumbúðir
taka þátt í þverfaglegri vinnu í meðferð skjólstæðinga
nota mismunandi verkjameðferðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í að undirbúa skjólstæðinga fyrir rannsóknir og aðgerðir
nýta sér hjúkrunarskráningu í starfi
sýna smitgát í verki
bregðast við breytingum á ástandi sjúklings á faglegan hátt
miðla upplýsingum um mismunandi verkjameðferðir
miðla þekkingu sinni í þverfaglegri vinnu
leiðbeina skjólstæðingum með athafnir daglegs lífs m.t.t. áhrifa sjúkdómsástands á sjálfsumönnun og heilsu
útskýra almennan og sérhæfðan undirbúning og eftirlit sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá