Í áfanganum er fjallað um hugtök og kenningar í fjölskyldu- og geðhjúkrun ásamt heimahjúkrun og heilsugæslu. Farið er í kenningar um þroskaferil fjölskyldunnar, þarfir og verkefni fjölskyldumeðlima á ýmsum þroskastigum. Farið er í hugmyndafræði heilsueflingar og hjúkrunarviðfangsefni í tengslum við fjölskyldu- og heimahjúkrun. Fjallað er um algengar geðraskanir, hjúkrun, forvarnir og endurhæfingu geðsjúkra með áherslu á fjölskyldumiðaða nálgun. Áhersla er lögð á að nemandinn kynnist mikilvægi geðhjúkrunar á hinum ýmsu sviðum heilbrigðisþjónustunnar.
Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
HJÚK3TV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum og kenningum í fjölskyldu- og geðhjúkrun
hlutverki heilsugæslu og heimahjúkrunar í samfélaginu
hugmyndafræði þroska- og fjölskyldukenninga
heilsueflingu og forvörnum
einkennum og hjúkrunarmeðferðum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lýsa áhrifum veikinda einstaklings á fjölskylduna
hjúkra einstaklingum með geðraskanir og fíknisjúkdóma
beita þekkingu sinni í samvinnu við aðrar fagstéttir
leiðbeina og fræða aðra um heilsueflingu og forvarnir
nota kenningar og hugtök innan fjölskylduhjúkrunar í raunverulegum verkefnum
lýsa einkennum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
nota viðurkenndar hjúkrunarmeðferðir í fjölskyldu- og geðhjúkrun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka helstu kenningar og hugtök innan fjölskyldu- og geðhjúkrunar
útskýra hlutverk heima- og heilsugæsluhjúkrunar
bera saman hugmyndafræði mismunandi þroska- og fjölskyldukenninga
vera þátttakandi í heilsueflingu og forvörnum í samfélaginu
rökstyðja hjúkrunarmeðferðir í heima- og heilsugæsluhjúkrun
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá