Verknám á hjúkrunaheimili eða öldrunarlækningadeild
VINN3ÖH08
5
Verknám
öldrunarhjúkrun
Samþykkt af skóla
3
8
Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á öldrunarlækningadeildum eða hjúkrunarheimilum. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í vinnustaðanáminu fær nemandinn tækifæri til þess að sýna aukið sjálfstæði við skipulagningu hjúkrunarstarfa og við mat á hjúkrunarþörfum skjólstæðinga, jafnframt að benda á lausnir á þeim hjúkrunarviðfangsefnum sem við eiga á vinnustaðnum. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
VINN2LS08
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun aldraðra
helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði aldraðra
forvörnum og slysagildrum í umhverfi aldraðra
fylgikvillum rúmlegu
helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrun aldraðra
faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem eru notuð í hjúkrun aldraðra
skráningu hjúkrunar
sjálfsákvörðunarrétti og réttindum aldraðra samkvæmt lögum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta sjálfsbjargargetu og þarfir aldraðra í athöfnum daglegs lífs
sýna öldruðum virðingu og faglega umhyggju
mæla og skrá algengar athuganir
nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
forgangsraða eigin störfum
vinna samkvæmt hjúkrunarferli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og rökstyðja hana
virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og mikilvægi trúnaðar
sýna færni í samskiptum við aldraða, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
sýna faglega umhyggju í hjúkrun
leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
hjúkra öldruðum á heildrænan og faglegan hátt
útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi aldraðra
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá