Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1493913753.3

    Timburhús 1 Gólf– og veggjargrind
    HÚSA3HU09
    5
    Húsasmíði
    Klæðning, einangrun, gluggar, hurðir
    Samþykkt af skóla
    3
    9
    Í áfanganum er kennd smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðar- og milliveggi. Farið er í klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga, hurða, stiga og innréttinga auk almenns frágangs. Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval og staðsetning á stoðum. Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp.
    GLUH2GH08, INNK3HH05 og INRE2HH08
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu berandi timburveggja
    • smíði gólf- og hæðaskila í timburhúsi
    • uppbyggingu eldvarnarhólfa
    • stífingu timburhúsa
    • yfirborðsmeðferð smíðaviðar
    • mismunandi undirstöðum fyrir timburhús
    • algengum útfærslum á undirstöðum (úr steini og tré)
    • festingum gólfvirkis við sökkul- eða súluundirstöður
    • stífingu og afréttingu gólfbita
    • stífingum á grindarveggjum, staðsetningu stoða og festingar
    • algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
    • uppsetningu á vindvörn og klæðningagrind og reglur um loftun
    • frágangi á borðaklæðningum í kringum veggop og á hornum og brúnum
    • uppsetningu lagnagrindar og afréttingu hennar
    • gólfklæðningum á gólfbita með tréborðum og gólfplötum
    • yfirborðsmeðferð timburs
    • hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
    • smíði steypumóta fyrir stiga
    • eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
    • mismunandi festingakerfum og afréttingu þeirra
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu grindar og klæðningar
    • muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
    • smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíða gólfvirki og hæðaskil með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
    • greina algengar útfærslur á undirstöðum úr steini og tré
    • greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
    • ganga frá hurðum og gluggum í timburhús
    • velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu
    • klæða og velja heppileg verkfæri með mismunandi innanhússklæðningum á gólf, veggi og loft
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka tréundirstöður í rétta hæð fyrir dregara og stífa af
    • smíða létta innveggi og berandi útveggi úr tré
    • smíða létta innveggi og berandi útveggi með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
    • smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
    • smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
    • klæða útveggi með liggjandi og standandi timburklæðningu
    • klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
    • einangra og klæða gólf og veggi innanhúss
    • koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
    • setja upp útihurðir og glugga, glerja og ganga frá bæði að utan og innan
    • stilla af karma og festa með tilheyrandi þéttingum
    • glerja og ganga frá með tilheyrandi listum, áfellum og gereftum
    • setja upp innréttingar og tréstiga og ganga frá listum í kverkar m.m.
    • koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá